Terms of service
Skilmálar Nefndu
Síðast uppfært: 27. október 2025
Velkomin á heimasíðu Nefndu. Með því að versla í netverslun okkar samþykkir þú eftirfarandi skilmála.
Við leggjum áherslu á gagnsæi, gæði og hlýja þjónustu.
1. Um Nefndu
Nefndu ehf. er íslensk netverslun sem sérhæfir sig í handsaumuðum sængurverum með sérsniðnum nöfnum.
Vörurnar eru unnar úr vottuðum efnum sem tryggja öryggi og gæði.
2. Pöntun og afhending
Allar vörur eru sérsaumaðar eftir pöntun.
Viðskiptavinur fær staðfestingarpóst þegar pöntun hefur verið móttekin.
Afhendingartími er allt að 5-7 virkir daga, Í einstaka tilvikum getur afgreiðsla tafist lítillega.
Við reynum að afhenda vörur eins fljótt og auðið er og látum vita ef tafir verða.
3. Verð og greiðslur
Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt.
Greiðslur fara fram með millifærslu.
Pöntun telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.
4. Sérpantanir og skilastefna
Þar sem hver vara er sérsaumuð eftir óskum viðskiptavinar gilda eftirfarandi:
-
Sérpantanir eru ekki endurkræfar, nema vara sé gölluð eða mistök hafi átt sér stað af okkar hálfu.
-
Ef vara berst gölluð eða röng, vinsamlegast hafðu samband innan 7 daga frá móttöku.
-
Við leggjum áherslu á sanngjarna og persónulega lausn í öllum málum.
5. Afnema eða breyta pöntun
Vörur eru framleiddar innan 24 klst. frá því að pöntun berst.
Eftir að framleiðsla hefst er ekki hægt að afpanta eða breyta pöntun.
Ef breytingar eru nauðsynlegar, vinsamlegast hafðu samband sem fyrst á nefndu@nefndu.is.
6. Sendingar og afhending
Við sendum vörur um allt land með Póstinum.
Sendingarkostnaður fer eftir valinni sendingaraðferð og er sýnilegur við lok pöntunar.
Við berum ekki ábyrgð á töfum hjá flutningsaðilum, en fylgjum málum eftir þar til varan hefur borist.
7. Gæði og öryggi
Allar vörur Nefndu eru unnar úr OEKO-TEX® Standard 100 vottuðum efnum sem eru örugg fyrir börn og laus við skaðleg efni.
Hvert stykki er sérsaumað með nafni á Íslandi og skoðað áður en það fer í sendingu.
8. Höfundarréttur
Allt efni á heimasíðu Nefndu – textar, myndir, hönnun og lógó – er eign Nefndu ehf.
Óheimilt er að afrita, breyta eða nota efnið án skriflegs leyfis.
9. Breytingar á skilmálum
Við áskiljum okkur rétt til að breyta þessum skilmálum þegar þörf krefur.
Uppfærðar útgáfur eru birtar á þessari síðu og taka gildi við birtingu.
10. Hafa samband
Ef þú hefur spurningar eða athugasemdir varðandi skilmála:
Nefndu ehf.
📧 nefndu@nefndu.is
🌐 nefndu.is